Rússalán: Bjarnargreiði?

  Til að svara síðasta síðasta ræðumanni (Sigurbirni Svavarssyni) Þá er Gísli Marteinn hér einfaldlega að hvetja til varfærni og benda á það -burtséð frá því hvaða aðrir kostir kunna að vera í stöðunni eður ei- að til séu hlutir sem ekki sé fórnandi fyrir nokkra fjárhæð: Því þarf að vera á hreinu að skilyrði sem rússneski björninn setji séu ásættanleg og allt uppi á borði í þeim efnum.

Ég er sjálfur hræddur um að þetta kunni að reynast Bjarnargreiði. 

 


mbl.is Gísli Marteinn: Vill frekari skýringar á Rússaláni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YNDISLEGT

  Ég er einn af þeim námsmönnum á erlendri grund sem undanfarið hafa horft á annars ágæt laun sumarsins rýrna og verða að litlu.. Mikið er yndislegt að horfa á þetta:

  Ég byrja daginn á að hoppa brosandi beint úr draumalandinu langt fram á gólf (búinn að bursta tennurnar og gera 200 armbeygjur áður en ég lendi), fara með pepp/secret/töfra/lygaþulu um hvað ég og tilveran og allt sé frábært og hvað dagurinn í dag eigi eftir að verða betri en dagurinn í gær...   fæ mér svo naglasúpu með andabrauði frá í fyrradag og kíki á mbl.is á netinu í  fartölvinni minni sem ég verð búinn að borga eftir 2ár .... kíki á nýjustu fréttir af vinkonu minni; íslensku krónunni og reikna hlæjandi út hvað ég hef tapað miklu á því að hafa ekki tekið út fyrir húsaleigunni kvöldið áður
-Spýti svo blóðinu sem safnast hefur í munninn og skola.

   Leigan er skyndilega orðin tvöfalt hærri en hún var í fyrra í krónum talið!!

Ég nenni ekki að skrifa meira í bili. Skríð aftur undir sæng.

Vekið mig þegar krónan fer að styrkjast!!


mbl.is Gengi krónunnar veiktist um 11,65%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÚBBS! -og takk fyrir viðskiptin!

Og hvað skyldu þeir hjá þessum UBS banka svo hafa ætlað  segja við viðskiptavini sína sem í góðri trú höfðu treyst þeim fyrir fé sínu - kannski sparifé margra ára eða heillar ævi- þegar hlutir þeirra væru orðnir verðlausir?: 

" Hvað getum við sagt:  þú átt bara ekkert eftir og vel á minnst neyðumst við til að taka húsið ..þitt upp í skuldiranar [sem við komum þér í] :   Úbbs og takk fyrir viiðskiptin..." [en endilega fáðu þér meira kaffi, það er frítt] "   Maður veltir nú bara ósjálfátt fyrir sér viðskiptasiðferði íslensku bankanna sem eru orðnir að einhvers konar ómanneskjulegum fjárfestingarófreskjum sem eru fljótar að leggja fé landans undir þegar allt leikur í lyndi en seindrægar honum til liðsveislu er harðanr í ári.. og vei! þeim er skuldar eitthvað!!  Ef þú ert að tapa einhverju á að hafa fylgt ráðum þeirra sérfræðinga ..tja þá er það náttúrulega bara sjálfum þér að kenna!!  " ..en endilega fáðu þér ábót  á kaffið [og hættu svo þessu helvítis væli, auminginn þinn!]" 
Fleyg urðu orð íslendings nokkurs á erlendri grundu er hann mælti eftir sprengitilræði: "Shit happens!"  -Skyldi hann vera að vinna hjá bönkunum í dag?     
mbl.is UBS-bankinn í enn frekari vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Oft veltir lítil dúkka..."

Já mér hefur alltaf fundist þessar dúkkur hálf svona spooky..Neineineinei Smile

Ég veit svo sem hvað þetta gengur út á hjá þeim; Þeir eru hræddir um að stúlkur taki sér Barbíe til fyrirmyndar sem væri náttúrulega erfitt fyrir þá að höndla..  Er ekki til dúkka af Silvíu Nótt ?? Hvað ætli þeir myndu þá segja?

Og það er ekki eins og þetta séu dúkkur fylltar af sprengiefni eða einhverju hættulegu ( enda mætti þá kalla dúkkuna "Bomb-Barbie".. og notkun hennar sem vopn þá á ensku "bombarbiement"              -eða hvað ? ? ? Wink)

Hvernig er það; er ekki einhver skopmyndateiknari til í að gera sér mat úr þessu?? 


mbl.is Barbie ógnar íranskri menningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hægt verður að KAUPA franskar og kók með..."

..fyrir 12.000kr hamborgara held ég að þeir geti nú látið þær frönsku og kókið fylgja með..!

-Nema auðvitað þeir fari alla leið og láti "þróa" Eðalfranskar og Eðalkók...:

Er þetta ekki bara Eðaldjók??

Verðhugmynd;

Eðalborgari 12.000kr  , Eðalfranskar 5.000kr, Eðalkók aðeins 3.000kr (áfylling 2000kr) 

Nú svo dugar náttúrulega ekkert minna með herlegheitunum en Eðalsalt, Eðatómatsósa...

Ég get ekki gert að því en mér finnst eitthvað við þetta andstætt konseptinu "hamborgari og frasnkar"

Ætli Icelandair  muni bjóða Eðalpakka fyrir þá sem vilja fara og smakka?

Vildarpunkta?

 


mbl.is Hamborgari á 12.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland á forsíðuThe Herald Tribune 18/4

Ég las líka ágæta grein í The International Herald Tribune 18/4 um efnahagskrísuna  og íslensku bankana.. Greinina getið þið nálgast hér:

 http://www.iht.com/articles/2008/04/17/business/iceland.php?page=1

 Það lítur út fyri að íslenska framtaksemin á erlendum vettvangi hafi bakað landinu einhverja óvini.


mbl.is Fjallað um útrásina í Tékklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver veit hvað honum gengur til..

  Maðurinn komst alla leið til Íslands, sem í sjálfu sér gæti verið ógn við öryggi landsins : Hver veit hvað honum gengur til?? Hryðjuverk kannski?   Annars er hér athyglisverður  tengill :

http://www.forcedmigration.org/ 

  Og hver veit hverjir sjá sér leik á borði að sækja um hæli..með vafasamar fyrirætlanir.. En alveg rétt, hvað veit ég..: Ekki kom ég að málinu og hef ekki hitt umræddan mann og Þetta er ekki árás á hann. 

  En einhverjum kann vel að þykja ofanritað fórdómafullt  og hvað með það: Ég var núna síðdegis á spjalli við  nemanda nokkurn við skólann minn hérna úti í París: Sá er múslími (ekki sérlega strangtrúaður á nokkurn hlut held ég reyndar.. ) en hann hafði í flimtingum smæð Íslands með aðeins 300.000 íbúa og gat hann ekki falið ákveðna fordóma, fáfræði en allra helst öfund -held ég þó- í garð þessarar stóru smáþjóðar sem við Íslendingar erum.. að hafa allt þetta land útaf fyrir okkur... "Er ekki pláss fyrir nokkrar milljónir þarna í viðbót ??"  

   Hvað með það þó að forfeður okkar hafi þraukað af sér harðindi, plágu og bláfátækt  til að geta  loksins, í gegnum afkomendur sína -okkur- uppskorið betri lífsskilyrði og búið þetta land eins og fólki sæmir.   Hvað er þá orðið þeirra starf

-sem við fengum í arf?

  Og hver veit; kannski höfum við sjálf gleymt forverum okkar í skjótfengnum gróða og ofvernduðum heimi þar sem allt virðist koma upp í hendurnar á okkur, og verstu hörmungar sem við getum hugsað  okkur er að þurfa bíða smátíma í umferðahnút ... einu sinni.. vegna þess að einhverjir bílstjórar fóru í verkfall!!

Getur verið að við gleymum því sem við höfum? Að við látum það á endanum fyrir slikk

-ál eða blikk?

Og það er í mannlegu eðli að öfunda, ásælast og sækja þangað sem grasið virðist grænna..   og að vera með fordóma . Þetta síðasta er ósjálfrátt  og náttúrulegt sjálfsvarnarviðbragð sem þarf   meðvitaða hugsun og jafnvel einbeittan vilja til að temja*

 Æ.. Ég ætlaði nú annars ekkert að blogga um þetta..

* Ég segi "temja" ekki "bæla", "uppræta","brjóta á bak aftur" ... þvi líkt og með önnur náttúruleg sjálfsvarnarviðbrögð Þá hafa þeir tilgang; nefnilega þann að vara okkur við hugsanlegum hættum. 

 


mbl.is Ákvörðun um brottvísun úr landi felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur bara ekki getað ákveðið sig ;)

Er ekki sagt að gott lögguefni sé einnig ´gott´ efni í glæpamann?  Hann hefur bara viljað nýta hæfileika sína til fulls..  ; eða ekki verið búinn að ákveðia sig..


mbl.is Löggan reyndist vera bankaræningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Heatrow"-flugvelli, ha??


  Innsláttarvillur geta verið skemmtilegar: Ég efast t.d. ekkert um að sá er fréttina skrifaði kunni að stafa nafn  flugvallarins rétt (-og þó svo væri ekki, þá er jú um erlent nafn að ræða og varla hægt að skylda fólk til að stafa slík nöfn rétt...?)

  E.t.v væri reynandi að íslenska Heathrow svona eins og "Lundúni"  ( Hvað er annars "lúndún" - eða átti þetta kannski að vera ´dúnn´ ... svona "lunda-dúnn"  t.d. (ég vissi ekki að það væru lundar í Bretlandi) Af hverju ekki þá alveg eins "Lon-og-don"? : Stundum bara veit maður ekki hvað forfeður okkar voru að reykja (en kannski það hafi verið blessað birkið, þar sem landið á jú að hafa verið "skógi vaxið frá fjöru til fjalls" við landnám? Þó vísast sé Lundúns*vitleysan ekki alveg svo gömul)  Allt um það...) 

Hmm Heathrow gæti t.d. íslenskast sem  Heiðarruna eða  Lyngheiðarlengja  (=> "Lyngheiðarlengjuflugvöllur" eða stutt og smellið "Heiðarrunuflugvöllur") rennur ljúft í munni  eins og ..eins og ...eins og.. Hmm ??

Hey! Evreka!!  Ég var þó  a.m.k. að finna upp götunafn: - Lengja (eða er það kannski til?) .. 

"Já  ég er nýfluttur upp í Lengjuhverfi, þarna Lyngheiðarlengja heitir gatan þarna milli Lofthænulengju og Ljósálfalengju ? ""Ha, ertu bara með gamalt kort?" ".  æ þarna þú veist, nýja hverfiið milli Bakkahverfis og Kjálkahverfis ; varstu ekki í partíinu í Útkjállka 10 um síðustu helgi ? -eða hvort það var Grafarbakki 9?"" .. Já þar rétt hjá! " "Sjáumst!"

...Alveg rétt við vorum að tala um: "Heatrow"  ...hmm : Hljómar eins og fangelsisálma: Kannski þar sem föngum -ekki alveg þeim harðsvíruðustu er velgt undir uggum (sbr "heat" (eða eins og Sigurður Heitiég Ólafsson myndi segja "..heated under the fins.."))

Næsta álma við "Deathrow" þ.e.a.s.  :

Ekki gott nafn á flugvelli það, í öllu falli Wink

.. Já og svo " Debtrow"  fyrir hvítflibbakrimmana ..: skuldarana!

Náttúrulega algerlega tilgangslausar pælingar... 

 *bara svona "stjarna" Tounge


mbl.is British Airways aðhlátursefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert þó í logandi...!!

Hún hefur kannski bara ætlað að  ´ylja´ honum  (eða kannski ferkar ilja Wink) en svo kviknað í skítnum á fótunum? Einherjar gastegundir farnar að myndast . Undarlegustu fréttir sem maður heyrir frá Reuters annars...Maður veltir stundum fyrir sér hvort þeir sitji ekki bara á fréttastofunni reykjandi eitthvað - eða sniffandi (táfýlu?), en segir svo spaklega við sjálfan sig :  "Allt getur nú gerst.."


mbl.is Brenndur lifandi út af skítugum fótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband