23.5.2009 | 01:25
Efni í útrásarvíking!
Það mun þurfa að fylgjast með henni þessari !
eða hvernig í ósköpunum fór hún að þessu?
Hversu margar aðgerðir skuli hafa þurft að "framkvæma" (meðvitað, en þá er hér um mjög bráðþroska barn að ræða) eða slysast á? Er hægt að gera svona óvart?
Ketti nokkrum tókst einhverju sinni að eyða fyrir mér skrá sem ég var búinn að vera lengi að vinna með -er honum fannst hann ekki fá næga athygli- með því að stökkva upp á lyklborðið (delete) og þaðan beint á músina (lítil svört IBM mús sem er bara nokkuð músaleg) en við það smelltist á "OK" þegar átti að stafesta eyðingu skráarinnar ... jájá, allt í lagi, ég stoppaði hann áður en han gat tæmt "ruslakörfuna" en hann náði með þessu óskiptri athygli minni! -Og notar þetta æ síðan.
Annar köttur hefur uppgötvað píanó til að ná athygli..og spilar bara orðið ágætlega
-af ketti að vera.
Skyldi sú stutta hafa verið að sækjast eftir athygli??
![]() |
3 ára keypti skurðgröfu á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.