22.6.2009 | 23:06
Múslímakvennaslæðan:þægilegur klæðnaður við öll tækifæri..
Nútímalegur klæðnaður við öll tækifæri..(öhm?)
Myndina hér fyrir ofan tók ég í laumi við afgreiðslukassa matvörubúðar í útvherfi Parísar þar sem ég hef búið um skeið, múslímar eru þar í yfirgnæfandi meirihluta og slæður sjást tíðum í öllum veðrum; jafnt á köldum vetrarmorgnum sem í steikjandi sumarhita.. Sem sagt; á undan mér í kassaröðinni voru hjón (að því er ég gerði ráð fyrir!) og svo sem sjá má huldi slæða konunnar hana alveg svo ekki sást einu sinni í augun!- Karlinn horfði á og aðhafðist lítið gagnlegt annað en að stýra henni að kassanum þar sem hún tíndi upp úr körfunni, og borgaði í átt að afgreiðslumanninum...
Ég hlýt að hafa gónt eins og naut á nývirki og ætlaði varla að trúa þessu: Konan var bara eins og búfénaður eða heimilisróbóti.(svona R2D2 úr Star Wars/Darth Vader/Kitchenaid...)
Er heim var komið fannst mér ég þurfa að vinna úr þessu og föndraði myndina hér fyrir neðan: Ég læt hana vera mitt innlegg í þessa umræðu.
"Þögult óp"/"Silent Scream" (PAK 2006)
Sarkozy: Búrka tákn undirgefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.