17.7.2009 | 20:45
Sorgardagar - klæðumst svörtu!
Ég legg hér með til að við sem erum á móti ESB aðild klæðumst svörtu þannig að hugur okkar sjáist svart á hvítu..
Nú lá samningurinn tilbúinn og sjálfsagt búinn að liggja i skúffu Samfylkingarinnar um tíma og klárt að makkað hefur verið um þetta lengi.. Og þjóðin á ekkert að fá að segja um þetta!
Ætli eitthvað af þessu fólki sé ekki þegar búið að semja um einhverjar þægilegar skriffinnastöður í ESB undir rassana á sér !!
Ísland á allt til alls til að vera fyrirmyndarríki á öllum sviðum.við höfum þekkingu og sköpunarkraft sem gerir okkur alla vegi færa.
Landbúnaðurinn? Má ég fyrir mitt leyti frekar biðja um hreint íslenskt fjallalamb og íslenskar affurðir -þó dýrari verði- en eitthhvað Júrójukk!
Við eigum ekki að þurfa að bera okkur saman við þessi ríki skriffinnsku, meðaljónsku og loftmengunar
Og hverjir vilja aðild á efnahagslegum grundvelli? Eru það ekki einmitt okkar gömlu útrásarvíkingar sem bíða þess eins að fá að hefja leiknnn á ný með Evrópu sem leiksvið??
Lærum við ekkert?
Kannski eigum við þetta land allsnægta ekki skilið.
Búið að sækja um ESB-aðild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það sem ég skil ekki er eftirfarandi: Þarf svona lagað ekki að fá staðfestingu forseta síðan að birta það í stjórnartíðindum fyrst til þess að þessi gjörningur sé löglegur ?
Sævar Einarsson, 18.7.2009 kl. 00:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.